Sælar nú! Nú styttist í stóru vísindaferðina, hér á eftir koma upplýsingar um hvað og hvert eigi að borga og dagskrá ferðarinnar. Endilega hafið samband við okkur ef eitthvað er óljóst :)
Hér er dagskrá Eirar fyrir Stóru vísindaferðina
Fimmtudagur 7.febrúar
12:00 Áætluð brottför í rútu frá Háskólanum á Akureyri
19:00 Verðum kannski alveg örugglega komin á Hótel Barón
20:00 Lebowski Bar
Bjór og Burger á tilboði fyrir alla Ha-linga.
Föstudagur 8.febrúar
11:15 Brottför frá Hótel Barón
Þeir sem eru ekki skráðir í rútuna til og frá Reykjavík borga 500kr. fyrir rútuferðirnar í dag.
11:30 Actavis
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
13:30 Brottför frá Actavis
14:00 Bláa lónið, Lækningalind, Svartsengi,240 Grindavík.
Hér fáum við kynningu á Psoriasis meðferðum sem eru í boði í Bláa lóninu. Þessar meðferðir fara fram í Lækningalindinni, en það er einnig lítið hótel.
Muna eftir sundfötum! Því við ætlum að taka sundsprett í lóninu góða. Það mun kosta litlar 500 kr. en Eir niðurgreiðir aðgöngumiðann. Þegar oní lónið er komið verður boðið uppá orkuskot og hinn glænýja þörungamaska. Við verðum svo bjútífúl, að innan sem og utan!
17:00 Brottför frá Lagoon
18:00 Komin á Barón, hendum af okkur töskunum og öllu draslinu og gerum okkur klár í næstu vísó!
18:30 NOVA: Allir HA-lingarnir sameinaðir eftir daginn
Laugardagur 9.febrúar
DAY OF FUN!
19:30 Út að borða
Og það er djamm í kvöld! Allir velkomnir með :D Ó Reykjavík, Ó Reykjavík
Sunnudagur 10.febrúar
12:00 Ekki komin endanlegur tími á brottförinni norður, reiknum með um og uppúr hádegi.
Tossalistinn:
500kr. í lagoon
500kr. í rútuna (fyrir þá sem eiga ekki rútusæti)
Sundföt
Handklæði
Brosið
Greiðslur þurfa að berast inn á reikning Eir fyrir miðnætti þann 5. febrúar og kvittun sendist á eir@fsha.is
Greiðsluupplýsingar:
Reikningsnúmer: 670291-1389
Kennitala: 0302-26-006702
Heimabarinn okkar að þessu sinni verður svo Lebowski bar! Við fáum tilboð á drykkjum og mat og eru tilboðin á Lebowski eftirfarandi:
Tilboð á bjór, léttvín, snafs og einfaldann í gos fyrir ykkur öll kvöldin frá kl 19 til 01.00 Bjór: 700 kr Einfaldur í gos: 1000 kr Snafs: 600 kr Léttvínsglas: 800 kr
Tilboð á hamborgurum, fáum auka 15% afslátt af þeim, en verðið er gott fyrir þá eða frá 790 kr. Svo eru allir mjólkurhristingarnir á 650 kr (mælt eindregið með Peanut Butter & Chocolate Shake).
Á Dönsku kránni og English pub stendur til boða sama tilboð sem mun gilda frá kl 19-01. En Lebowski er eini staðurinn með mat. Frá 17-19 er svo Happy Hour á Lebowski, tilvalið með matnum!
Kveðja Stjórnin :
Bryndís: 661-0662
Brynja: 898-9283
Jóna Margrét: 699-8667
Þórdís: 849-3031
↧