Aðalfundur Reka verður haldinn fimmtudaginn 21.febrúar kl 19.30 á efri hæð Café Amour. Við köllum nú eftir framboðum í eftirfarandi embætti:
Stjórn Reka: Formaður, varaformaður, fjármálastjóri og meðstjórnandi
Fulltrúa í Félags- og menningarlífsnefnd FSHA (ný sameinuð stjórn skemmtinefndar og íþrótta- og fjölskyldunefndar)
Fulltrúa í Kynninganefnd FSHA
Fulltrúa í Alþjóðanefnd FSHA
Skoðunarmann reikninga
Framboð og lagabreytingatillögur á lögum Reka skulu sendast á reki@fsha.is fyrir kl 19.30 þann 19.febrúar. Endilega hafiði samband á reki@fsha.is ef einhverjar spurningar eru í sambandi við embættin eða eitthvað annað.
↧