Heimildamyndin The Startup Kids verður sýndi í sal Háskólans fimmtudaginn 4. apríl kl. 17.Myndin fjallar um unga frumkvöðla sem hafa stofnað vef- eða tæknifyrirtæki í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún gefur innsýn í líf og hugsunarhátt ungu frumkvöðlanna. Meðal viðmælenda eru stofnendur Vimeo, Soundcloud og Dropbox sem allt eru vinsæl netfyrirtæki. Myndin er gerð af tveimur íslenskum frumkvöðlum, Valgerði Halldórsdóttur og Sesselju G. Vilhjálmsdóttur. Þær luku báðar námi frá Háskóla Íslands, annars vegar í verkfræði og hins vegar í hagfræði.
Sýningin er í samstarfi við Landsbankann og í tengslum við Atvinnu- og nýsköpunarhelgi, vinnusmiðju fyrir frumkvöðla, sem haldin verður á Akureyri helgina 5. – 7. apríl. Nánar um vinnusmiðjuna á www.anh.isAðgangur er ókeypis og háskólanemar velkomnir meðan húsrúm leyfir.Skráning á sýningu http://www.landsbankinn.is/skraning/The-Startup-Kids-a-AkureyriGrein um gerð myndarinnar. http://www.landsbankinn.is/fyrirtaeki/nyskopun/greinar/2012/10/11/Heimildarmyndin-The-Startup-Kids--Making-of/
