![]()
FSHA gerði könnun meðal nemenda Háskólans á Akureyri á tímabilinu 27.03.2013-03.04.2013 um atvinnuhorfur þeirra sumarið 2013. Heildarþátttaka var 337 manns, þar af voru 277 konur og 60 karlar. Niðurstöður könnunar FSHA leiddu í ljós að 35,31% nemanda væru ekki komin með vinnu sumar.
Þrýst var á stjórnvöld um að mikilvægt væri að halda áfram með árlegt sumarvinnuátak fyrir stúdenta, í ljósi niðurstaðna úr könnunum sem gerðar voru í háskólum landsins, þá sérstaklega á vegum Stúdentaráði Háskóla Íslands.
Samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar þann 9.apríl síðastliðinn að ráðstafa 250 milljónum króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði til að standa straum af kostnaði vegna átaksverkefnis um sumarstörf fyrir allt að 650 námsmenn.
Störfin verða auglýst í fréttablöðum næstkomandi 9. maí og opnað verður fyrir umsóknir á heimasíðu Vinnumálastofnunnar 10. maí. Undanfarin ár hafa 900 störf verið í boði í átakverkefni Velferðarráðuneytisins um sumarstörf en nú eru störfin hinsvegar 650. Munurinn er sá að undanfarin ár hafa störfin verið opin öllum atvinnulausum en í sumar er átaksverkefnið eingöngu ætlað sem sumarstörf fyrir námsmenn á milli anna. Störfin eru ekki ætluð nemendum sem eru að útskrifast því þeir hafa oftast áunnið sér rétt til atvinnuleysisbóta.
Samkvæmt yfirlýsingu Velferðarráðuneytisins mun Vinnumálastofnun auglýsa þau störf sem í boði verða hjá ríkisstofnunum en sveitafélögin munu sjálf auglýsa störf á sínum vegum. Akureyrarbær verður með átak fyrir 17-25 ára og mun átak þeirra verða auglýst um miðjan maí næstkomandi, á heimasíðu þeirra.