ATH!
Takið þessu með smá fyrirvara, þar sem það bárust mun fleiri skráningar en við gerðum ráð fyrir gæti verið að við þurfum að hætta við einstaka vísindaferðir vegna fjöldatakmarkana og koma með aðrar í staðinn! Fylgist með hérna inná síðunni :)
Dagskráin í Stóru Vísó komin á hreint kæru Stafnbúar! Er hún svohljóðandi:
Fimmtudagur 7. feb 2012
12:00 Rútan leggur af stað frá Háskólanum á Akureyri með hressum dólgum
Um kvöldið reynum við að safnast saman á heimabarnum
Föstudagur 8. feb 2012
10:30 Farið í vísó í Morgunblaðið
14:00 Farið í vísó í Össur
17:00 Farið í vísó í Marel
18:30 Mætum seint í sameiginlega vísó í Nova með restinni af HA
Laugardagur 9. feb 2012
Frjáls tími fyrri partinn, ef fólk vill er hægt að sameinast í GoKart ferð.
17:00 Farið í vísó í Lýsi
Um kvöldið er Norðlendingakvöld fyrir áhugsama þar sem Hvanndalsbræður, Jónsi í Svörtum fötum, Eyþór Ingi, o.fl. koma saman og skemmta og fáum við miðann á 1500 kall. Ballið er á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi.
Sunnudagur 10. Feb 2012
12:00 Rútan leggur af stað heim frá Hótel Barón með þunnum dólgum
Greiðslur þurfa að berast inn á reikning Stafnbúa fyrir miðnætti þann 5. febrúar og kvittun sendist á stafnbui@fsha.is
Greiðsluupplýsingar:Reikningsnúmer: 0302-26-050580Kennitala: 650590-2529
Heimabarinn okkar að þessu sinni verður svo Lebowski bar! Við fáum tilboð á drykkjum og mat og eru tilboðin á Lebowski eftirfarandi:
Tilboð á bjór, léttvín, snafs og einfaldann í gos fyrir ykkur öll kvöldin frá kl 19 til 01.00Bjór 700 krEinfaldur í gos 1000 krSnafs 600 krLéttvínsglas 800 krTilboð á hamborgurum, fáum auka 15% afslátt af þeim, en verðið er gott fyrir þá eða frá 790kr. Svo eru allir mjólkurhristingarnir á 650 kr (mælt eindregið með Peanut Butter & Chocolate Shake)Á Dönsku kránni og English pub stendur til boða sama tilboð sem mun gilda frá kl 19-01. En Lebowski er eini staðurinn með mat. Frá 17-19 er svo Happy Hour á Lebowski, tilvalið með matnum!
Þetta er ferð sem enginn má missa af! Hægt verður að skrá sig til miðnættis á morgun, 31. janúar, og eftir það er skráningin bindandi! Svo það fer hver að verða síðastur að skrá sig.
kv. Æðstaráð
↧